23. janúar 2012
Mynd augnabliksins.
Seyðisfjörður
Við Fjarðará, 20. janúar 2012.
![]() |
|
Velkomin á heimasíðu Brimbergs ehf. Það var árið 2004 sem Brimberg ehf. hóf rekstur fiskvinnslu á Seyðisfirði en aðal uppistaða rekstursins er vinnsla bolfisks það er þorsks, ýsu og ufsa. Fyrirtækið er til húsa að Hafnargötu 47 og er allur bolfiskur unninn og frystur þar. Fyrirtækið hefur síðan rekstur hófst endurnýjað vinnslulínur og árið 2007 var tekin í notkun ný flæðilína frá Marel ehf. og eins hefur vinnslusalur verið endurnýjaður svo dæmi séu tekin. Brimberg ehf. er einnig vel tækjum búið til vinnslu uppsjávarfisks en vinnsla á honum hefur verið stopul síðustu ár vegna lítils framboðs hráefnis. Uppistaða þess bolfisks sem berst til vinnslunnar kemur af ísfisktogaranum Gullver NS 12 en einstaklega gott samstarf er á milli forsvarsmanna og eigenda Gullbergs ehf. sem á og rekur togarann og Brimbergs ehf. Um 45 manns starfa hjá Brimbergi. Það má með sanni segja að ástæða þess að jafn viðkvæmur rekstur og fiskvinnslan er hefur verið farsæl í um 7 ár er það mikla og góða samstarf sem er á milli forsvarsmanna og starfsmanna Gullbergs ehf. og Brimbergs ehf. Og síðan einnig sú gæfa fyrirtækisins að hafa ávallt haft á að skipa einstaklega samhentu og góðu starfsfólki. |




